Íslensk þjónusta · WordPress og vefhýsing

WordPress hýsing sem léttir þér lífið.

Hraðvirk WordPress- og Linux-hýsing með sérstakri tölvupósthýsingu og öryggisafritum inniföldum. Pósturinn er aðskilinn frá vefhýsingunni, svo þú þarft ekki að kaupa sérstaka póstþjónustu annars staðar. Við hjálpum þér að komast í loftið.

Viltu frekar þinn eigin þjón? Skoða sýndarþjóna (VPS).

VEFGEYMSLAN · HÝSINGARYFIRLIT
Vefurinn þinnTilbúinn fyrir næsta skref?
Öflugir innviðir
SSLÖrugg tenging
CDNHraðari afhending
AfritEndurheimtarmöguleikar
Fyrirfram uppsett WordPressÞú einbeitir þér að efninu
Frá 2019Reynsla af vefhýsingu
30 dagarEndurgreiðsluheimild skv. skilmálum
10 GBÍ hverju pósthólfi
Mannleg þjónustaAðstoð á virkum dögum

Vefhýsingar og verð

Rétt hýsing fyrir þínar þarfir

WordPress er einfaldasta leiðin fyrir flesta vefi. Þarftu önnur vefkerfi? Linux hýsing gefur þér meira val. Fyrir fulla stjórn á eigin sýndarþjóni er VPS rétta leiðin.

Sýna verð í:
Verð eru í EUR í pöntunarferlinu.
Vinsælasti kosturinn

WordPress hýsing

WordPress-hýsing með sérstakri tölvupósthýsingu og öryggisafritum inniföldum.

Frá€4,70/ mánuði
  • WordPress-uppsetning og stjórnunartól
  • WooCommerce og aðrar samhæfar netverslunarviðbætur
  • SSD-geymsla og ótakmörkuð bandvídd eftir skilmálum
  • Sérstök tölvupósthýsing, allt að 10 GB í hverju pósthólfi
  • SSL-vottorð, CDN og DDoS-vörn
  • Öryggisafrit í aðskildu afritunarkerfi
  • Prófunarumhverfi (staging) fyrir WordPress
Panta WordPress hýsingu
Meiri sveigjanleiki

Linux hýsing

WordPress dugar ekki? Sveigjanleg vefhýsing fyrir önnur kerfi, með tölvupósti og öryggisafritum inniföldum.

€19,11/ mánuði
  • Linux Unlimited: vefrými, bandvídd og MySQL samkvæmt skilmálum
  • PHP-stillingar, phpMyAdmin og áætluð verk
  • SSH, Git, FTP og skráastjóri
  • Undirlén og fleiri lén
  • SSL, CDN og öryggisskannanir
  • Sérstök tölvupósthýsing (10 GB á pósthólf) og afritun
  • Uppsetning úr úrvali vefforrita með einum smelli
Skoða Linux hýsingu
Fyrir sérhæfð verkefni

Sýndarþjónar (VPS)

Þinn eigin sýndarþjónn með meira frelsi til að velja hugbúnað og uppsetningu.

Frá€10,76/ mánuði
  • Frá 1 örgjörvakjarna
  • Frá 1 GB vinnsluminni
  • Frá 25 GB SSD-geymslu
  • Val um stýrikerfi og forrit
  • Þú stjórnar hugbúnaði og uppsetningu á eigin þjóninum
  • Hentar sérsniðnum kerfum og hugbúnaði
Skoða VPS pakka

Innifalið í WordPress- og Linux-hýsingu

Vefsíðan, pósturinn og afritin. Þrír mikilvægir þættir, aðskildir.

Þú færð meira en pláss fyrir vefsíðuna. Sérstök tölvupósthýsing og öryggisafrit eru hluti af þjónustunni, án þess að þú þurfir að leita til annars aðila fyrir póstinn.

Innifalið, ekki aukapakki

Sjálfstæð tölvupósthýsing

Pósturinn þinn er hýstur aðskilið frá vefsíðunni. Ef vefhýsingin lendir í truflun getur tölvupósturinn því enn verið tiltækur.

Allt að 10 GB í hverju pósthólfi

Notaðu netföng á þínu eigin léni með góðu geymslurými. Þurfirðu meira pláss er hægt að uppfæra í Deluxe-pakka.

Öryggisafrit aðskilin frá vefnum

Afritun fylgir hýsingunni og er í aðskildu afritunarkerfi. Geymslutími og endurheimtarleiðir fara eftir völdum pakka.

Aðskilin kerfi draga úr hættu á að ein bilun hafi áhrif á alla þjónustu, en tryggja ekki órofna virkni. Þessi fríðindi eiga við um WordPress- og Linux-hýsingu; VPS er sérstök þjónusta.

Netverslun og WooCommerce

Já, þú getur rekið netverslun á WordPress-hýsingunni.

Settu upp WooCommerce eða aðrar samhæfar netverslunarviðbætur og seldu vörur og þjónustu á netinu. Byrjaðu með pakka sem hentar umfangi verslunarinnar.

Stærri verslun eða mikil umferð? Við mælum með WP Ultimate fyrir umfangsmeiri vefverslanir. Þú velur pakkann í pöntunarferlinu.

Skoða WordPress-pakka

Uppsetning eða sérsmíði netverslunar, gjaldskyldar viðbætur og kostnaður vegna greiðslugátta fylgja ekki sjálfkrafa hýsingunni.

Verð í ISK eru eingöngu til viðmiðunar og miðast við nýjasta tiltæka gengi. Greitt er í EUR og endanlegt verð birtist við pöntun.

Berðu saman WordPress og Linux hýsingu
EiginleikiWordPress hýsingLinux hýsing
Hentar best fyrirWordPress-vefi, WooCommerce og aðrar samhæfar netverslunarviðbæturJoomla, Drupal og önnur studd PHP-vefkerfi
WordPress-stjórnunarverkfæri✓ Sérhæfð verkfæriEkki sérhæfð þjónusta
One-click uppsetning vefforritaÁhersla á WordPress✓ Úrval forrita
i
Yfir 80 forrit Hægt er að velja úr yfir 80 forritum og setja þau upp með einum smelli. Þar á meðal eru Joomla, Drupal, OpenCart, Moodle og auðvitað WordPress.
PHP og MySQL✓✓
FTP, SSH og skráastjóri✓✓
Git og áætluð verkFer eftir völdum pakka✓
SSL, CDN og öryggisverkfæri✓✓
Tölvupósthýsing aðskilin frá vefhýsingu✓ Innifalin✓ Innifalin
Allt að 10 GB í hverju pósthólfi✓✓
Stærra pósthólf (Deluxe)Uppfærsla í boðiUppfærsla í boði
Öryggisafrit í aðskildu kerfi✓ Innifalin✓ Innifalin
WordPress Care viðhaldsþjónusta✓ Fæst sem viðbót Ekki í boði
Umsjón með eigin vefkerfumÞú berð ábyrgð nema með CareÞú berð ábyrgð
Fullur rótaraðgangur að stýrikerfiNeiNei, veldu VPS
Báðar leiðir eru samnýtt vefhýsing með aðgangi að stjórnborði, ekki eigin sýndarþjónar. Samhæfni vefforrita, PHP-útgáfur og auðlindir ráðast af völdum pakka. Óviss um valið? Sendu fyrirspurn.

WordPress er okkar aðaláhersla. Linux hýsing er samnýtt vefhýsingarumhverfi, ekki VPS með rótaraðgangi. Nánari verð, gjöld og endanlegt heildarverð eru staðfest í pöntunarferlinu eða með sérstöku tilboði. „Ótakmarkað“ á við innan sanngjarnra notkunarskilmála, ekki ótakmarkaðan örgjörva eða vinnsluminni. WordPress Care er valfrjáls sérþjónusta, eingöngu fyrir WordPress-vefi.

Hvað færðu með hýsingunni?

Meira innifalið. Minni fyrirhöfn.

WordPress- og Linux-hýsing innihalda ekki bara vefpláss heldur einnig aðskilda tölvupósthýsingu og öryggisafrit. Hér fyrir neðan má sjá helstu WordPress-verkfærin. Nákvæm útfærsla fer eftir pakka.

Hraði sem skiptir máli

SSD-geymsla, CDN og afkastamikið skyndiminni hjálpa til við að afhenda efnið hraðar.

Öryggið í fyrirrúmi

SSL, öryggisskannanir, aðgangsstýringar og afritun draga úr áhættu í daglegum rekstri.

Póstur sem fylgir með

Sérstök pósthýsing, allt að 10 GB á pósthólf og möguleiki á Deluxe-uppfærslu. Pósturinn er aðskilinn frá vefsíðunni.

Nánar um WordPress hýsinguna

Tæknieiginleikar flokkaðir fyrir skýrari yfirsýn

WordPress og stjórnborð

  • Umsjón með hýsingarumhverfi
  • WordPress-verkfæri og prófunarumhverfi (staging)
  • Skráastjóri, FTP/SFTP og SSH
  • Undirlén og aðgangs- og villuskrár
  • Öryggisafrit geymd í aðskildu afritunarkerfi
  • Innflutningsverkfæri fyrir vef og póst

Hraði og skýjaumhverfi

  • SSD-gagnageymsla
  • Skyndiminni og Edge caching fyrir hraðari afhendingu
  • Hnattrænt CDN
  • Álagsjöfnun og sjálfvirk afkastaaðlögun
  • Gagnaversþjónusta í Bretlandi
  • Afkastamikil nettenging gagnavers

Öryggisverkfæri

  • Sjálfvirkar skannanir gegn spilliforritum
  • DDoS-vörn og vefforritaeldveggur
  • Tveggja þátta auðkenning (2FA)
  • Varnir gegn árásum á innskráningu
  • FTP-læsing og skráarheimildaskoðun
  • SSL-vottorð og Hotlink-vörn

Tölvupóstur

  • Sérstök pósthýsing aðskilin frá vefhýsingu
  • POP3, IMAP og vefpóstur
  • Allt að 10 GB í hverju pósthólfi, meira með Deluxe
  • Dagleg póstafritun með allt að 30 daga geymslu
  • Póstáframsending og sjálfvirk svörun
  • Ruslpósts- og vírusvörn
  • DKIM og sjálfvirk stilling pósthólfa

Hugbúnaður og aðgangur

  • Studdar PHP-útgáfur eftir framboði
  • PHP-viðbætur, svo sem PDO, SOAP og XML
  • phpMyAdmin fyrir gagnagrunna
  • WordPress-stjórnun innan hýsingar
  • Gagnaflutningur með FTP/SFTP
  • Fjöltyngt stjórnborð

Þjónusta og sveigjanleiki

  • 30 daga endurgreiðsluheimild samkvæmt skilmálum
  • Hýsing fyrir lítil og stærri verkefni
  • Möguleiki á að auka við þjónustuna
  • Aðstoð við flutning á nýjan hýsingaraðila
  • Viðhaldsþjónusta fyrir WordPress í boði
  • Persónuleg svör við sérhæfðum fyrirspurnum

Viltu koma vefsíðunni í loftið?

Byrjaðu á WordPress hýsingu, skoðaðu Linux hýsingu fyrir meiri sveigjanleika eða veldu VPS-pakka ef þú þarft þinn eigin sýndarþjón.

Velja WordPress pakka

Flyttu til okkar

Áttu vefsíðu nú þegar? Það þarf ekki að vera flókið að skipta.

Þú getur flutt vefsíðu og tölvupóst með flutningsverkfærum hýsingarinnar, yfirfarið afrit á tímabundinni slóð og skipt síðan yfir þegar allt er tilbúið.

Flytja WordPress vef
01

Flyttu vefinn og póstinn

Flutningsverkfæri hjálpa þér að afrita gögn frá núverandi hýsingu.

02

Yfirfarðu áður en þú skiptir

Prófaðu nýja vefinn áður en þú breytir lénsstillingum og beinir umferðinni yfir.

WordPress viðhald

Við hugsum um rútínuna. Þú hugsar um reksturinn.

Hýsingin heldur utan um grunninn. Með WordPress Care geturðu bætt við skipulögðum uppfærslum, vöktun og yfirliti yfir stöðu vefsíðunnar. Aðeins fyrir WordPress-vefi hýsta hjá Vefgeymslunni.

Grunnviðhald

Care Basic (WordPress only)!

Nauðsynlegt sjálfvirkt viðhald fyrir WordPress.

€9,90 / mánuði
  • Sjálfvirkar uppfærslur á WordPress, viðbótum og þemum
  • Vikuleg yfirferð á stöðu uppfærslna
  • Fimm mínútna uppitímavöktun
  • Eftirfylgni með tiltækum öryggisskönnunum
  • Mánaðarlegt viðhaldsyfirlit
Velja Care Basic
Sérsniðin þjónusta

Þarftu meira?

Stundum duga stöðluðu pakkarnir ekki. Þá finnum við leið saman.

Fáðu tilboð
  • Þarftu meira en Basic og Standard bjóða?
  • Ertu með sérhæfða vefsíðu eða óvenjulegar þarfir?
  • Viltu fá aðstoð við ákveðið verkefni?
  • Hafðu samband, segðu okkur frá þínum þörfum og við tökum spjallið.
Ræðum þína lausn
Berðu saman Care Basic og Care Standard
Innifalið í viðhaldinuCare BasicCare Standard
Sjálfvirkar WordPress uppfærslur✓✓
Vikuleg staða uppfærslna✓✓
5 mín. uppitímavöktun✓✓
Yfirferð öryggisskannana✓✓
Mánaðarlegt viðhaldsyfirlit✓✓
Uppfærsluferli með endurheimtarmöguleika*—✓
Yfirferð á stöðu öryggisafrita—✓
Sjálfvirkar heilsuprófanir eftir uppfærslur*—✓
Vikulegar afkastamælingar—✓
Reglubundin gagnagrunnssnyrting—✓

WordPress Care er eingöngu fyrir WordPress-vefi hjá Vefgeymslunni; ekki fyrir VPS, Drupal, Joomla eða sérsniðin kerfi. Þjónustan felur ekki sjálfkrafa í sér efnisbreytingar, viðgerðir, neyðarþjónustu eða hreinsun spilliforrita. *Þar sem viðeigandi verkfæri styðja ferlið.

Meira en vefhýsing

Vefsíðan getur gert miklu meira.

Sum verkefni kalla á sérsniðnar lausnir. Við getum aðstoðað við að finna réttu verkfærin og gerum þér tilboð.

Bókunarkerfi sem hentar þér

Hvort sem þú tekur við tímabókunum, leigir út aðstöðu eða býður upp á þjónustu, þá getur rétt bókunarkerfi sparað þér handavinnu og gert viðskiptavinum auðveldara að bóka.

  • Lausn valin með þínar þarfir í huga
  • Skýrt tilboð í uppsetningu
  • Hýsing og tæknileg útfærsla eftir samkomulagi
Senda fyrirspurn

Betra aðgengi að vefsíðunni

Vefurinn þinn ætti að vera auðveldari í notkun fyrir sem flesta. Við getum rætt aðgengisverkfæri, læsileika, skýra framsetningu og breytingar sem bæta notendaupplifunina.

  • Betri læsileiki, birtuskil og leiðsögn
  • Aðgengisverkfæri sem viðbót við góða hönnun
  • Sérsniðin ráðgjöf og útfærsla eftir þörfum
Spyrja um aðgengi

Bókunarkerfi og aðgengislausnir eru eingöngu í boði fyrir WordPress-vefi. Aðgengisviðbót ein og sér tryggir ekki að vefsíða uppfylli allar aðgengiskröfur; við skoðum gagnlegar úrbætur út frá þörfum notenda.

Vantar þig lén með hýsingunni?

Leitaðu að lausu .com, .net eða .org léni og byggðu upp þitt eigið netfang og vörumerki. Fyrir .is lén mælum við með að skoða ISNIC.

Dæmi um auglýst verð: .com / .net / .org frá €15,85 á ári. Verð eru staðfest við pöntun.
Finna laust lén

Reynsla viðskiptavina

Ekki bara okkar orð.

Hér eru ummæli sem viðskiptavinir hafa þegar deilt á vef Vefgeymslunnar.

„Vefgeymslan setti allt upp fyrir fyrirtækið, Vann vel með allar hugmyndirnar okkar. Þau eru mjög góð í því sem þau gera og eru mjög þjónustulunduð. …“

Sigrún og Símon Vogasjóferðir ehf.

“Super simple and effective hosting. Has everything I need – especially no-hassle DB management. 5/5 would recommend”

Jessica Anne Chambers Nyrbyr

Spurt og svarað

Góðar spurningar eiga skýr svör.

Hér eru svör við nokkrum algengum spurningum um WordPress hýsingu, flutning, viðhald og aðrar lausnir.

Spyrðu okkur
Hver er munurinn á WordPress hýsingu, Linux hýsingu og VPS?

WordPress hýsing er sérsniðin að WordPress. Linux hýsing er sveigjanleg samnýtt hýsing fyrir önnur studd vefkerfi, til dæmis Joomla eða Drupal, með PHP og MySQL. VPS er eigin sýndarþjónn með víðtækari stjórn á kerfinu. Þú berð ábyrgð á uppfærslum og viðhaldi hugbúnaðar sem þú setur sjálf(ur) upp á Linux hýsingu eða VPS.

Get ég rekið netverslun með WooCommerce hjá Vefgeymslunni?

Já. Þú getur sett upp WooCommerce eða aðrar samhæfar netverslunarviðbætur á WordPress-hýsingunni okkar. Minni netverslun getur byrjað í pakka sem hentar umfangi hennar. Fyrir stærri verslanir, aukið vöruúrval eða mikla umferð mælum við með WP Ultimate. Skoðaðu WordPress-pakkana og veldu rétta lausn. Hýsingin felur ekki sjálfkrafa í sér uppsetningu verslunar, gjaldskyldar viðbætur eða greiðslugáttaþjónustu.

Hvernig panta ég Linux hýsingu?

Linux Unlimited er í boði í pöntunarferli hýsingarpakkanna okkar. Veldu Linux Unlimited og fylgdu skrefunum til að ljúka pöntun.

Fylgja WordPress uppfærslur og viðhald hýsingunni?

Vefhýsingarumhverfinu er sinnt sem hluta af hýsingunni, en reglulegar uppfærslur á WordPress, þemum og viðbótum á þínum vef eru hluti af sérstakri WordPress Care þjónustu. Þjónustan er eingöngu ætluð WordPress-vefjum sem eru hýstir hjá okkur.

Get ég flutt núverandi vefsíðu og tölvupóst?

Já. Í WordPress hýsingunni eru verkfæri sem geta auðveldað flutning vefsíðu og tölvupósts. Þú getur prófað síðuna áður en lénið er tengt við nýju hýsinguna og haft samband ef þú þarft aðstoð.

Þarf ég að greiða sérstaklega fyrir tölvupósthýsingu?

Nei. Sérstök tölvupósthýsing fylgir bæði WordPress- og Linux-hýsingunni okkar. Þú getur stofnað netföng á þínu léni, hvert með allt að 10 GB rými, og uppfært í Deluxe ef þú þarft meira. Pósthýsingin er aðskilin frá vefhýsingunni, svo truflun á vefsíðunni þýðir ekki endilega að tölvupósturinn fari líka niður. Þessi innifalda þjónusta á ekki sjálfkrafa við um VPS-pakka.

Eru öryggisafrit innifalin og geymd aðskilin?

Já. Öryggisafritun fylgir WordPress- og Linux-hýsingu og afritin eru í aðskildu afritunarkerfi, ekki eingöngu með vefsíðunni sjálfri. Geymslutími, afritunartíðni og endurheimtarleiðir geta verið mismunandi eftir pakka. Þau koma ekki í stað allra eigin afrita fyrir sérlega mikilvæg gögn.

Bjóðið þið upp á bókunarkerfi og aðgengislausnir?

Já, fyrir WordPress-vefi samkvæmt sérstöku samkomulagi. Við ræðum þarfirnar, finnum viðeigandi lausn og gerum tilboð í uppsetningu eða ráðgjöf. Sendu okkur fyrirspurn til að ræða möguleikana.

Hvað ef ég vil hætta við?

Á vef okkar er auglýst 30 daga endurgreiðsluheimild. Réttur til endurgreiðslu og hugsanlegar undantekningar fara eftir gildandi skilmálum. Við mælum með að kynna sér þá áður en pantað er.

Hugmyndin þín á skilið góðan grunn.

Veldu WordPress hýsingu til að byrja, skoðaðu Linux hýsingu fyrir frjálsara val á vefkerfum eða VPS-pakka fyrir þinn eigin þjón. Við hjálpum þér að taka næsta skref.

Þarftu frekar sýndarþjón? Skoða VPS.