Skilaboð

Hefur þú einhverjar spurningar, ábendingar, hrós, eða last. Endilega sendu á okkur línu og við munum hafa samband eins fljótt og auðið er. Vinsamlegast athugið, við reynum að svara eins fljótt og auðið er en vinsamlegast ath að það getur tekið upp undir 24 klst að svara og aðeins á virkum dögum (sjá afgreiðslutíma hér að neðan) nema um neyðartilfelli sé að ræða.

Netfang

Skilabod [at] Vefgeymslan.is

Aðstoð

Fylla út form eða hjalp [at] vefgeymslan.is

Opið

9 – 16 Alla virka daga

Vinsamlegast lesið Skilmála áður en óskað er eftir aðstoð.

Aðstoð

Sendu okkur beiðni

Vantar þig aðstoð? Endilega smelltu á hnappinn hér til hliðar og fyltu út hjálpar beiðni eða sendu á hjálpar netfang okkar og við svörum eins fljótt og auðið er eða inna 24 klst. Við mælum með að þú byrjir á því að skoða leiðbeiningar.

Hvað þjónustum við og hvað ekki?

Við þjónustum allt sem viðkemur vef- og pósthýsingu. Við þjónustum ekki vefsíður nema þú hafir gert sér samning við okkur þar um, þá getur þú sent á okkur viðhaldsbeiðni sem hefur beint með vefsíðu þína að gera.

Einhverjar spurningar?

Spurningar og Svör

Eru þið bara með WordPress hýsingu eða sýndarþjóna?

Nei, alls ekki. Við getum sérsniðið þjónustuna að þínum þörfum. Ef þú vilt frekar fá Linux/Windows hýsingu með möguleika til að setja upp yfir 80 vefsíðukerfi, t.d. Drupal, Joomla og s.frv, þá er það ekkert mál. Endilega sendu okkur fyrirspurn hér að ofan og við sníðum tilboð handa þér sem þú getur ekki hafnað!

Hver eru þið?

Við erum nokkrir vinir sem byrjuðum á því að hanna vefsíður 2010 í frístundum. Fórum svo að bjóða upp á hýsingar 2016 fyrir vini og vandamenn sem stækkaði svo mjög að við ákváðum að stofna Vefgeymsluna 2022. Það er von okkar að með Vefgeymsluni verði hægt að bjóða upp á ódýra og fyrsta flokks vefhýsingu, hvort sem það er fyrir einstaklinga eða fyrirtæki.

Hvar er hýsingin staðsett?

Hýsingin er í Bretlandi. Við verslum hýsinguna af aðila sem hefur verið að síðan 1997, það er því gífurleg reynsla á bak við allt sem við bjóðum upp á.

30 daga skilaréttur, hvað meinið þið með því?

Nákvæmlega það sem það segir. Þú getur óskað eftir að fá endurgreitt innan 30 daga frá því að þú keyptir hýsinguna ef hýsingin er ekki eins og þú gerðir þér vonir um og/eða hvað svo sem er að. Það kemur okkur annars ekkert við, við reynum þó að gera betur og eru því allar ábendingar vel þegnar.

Afhverju ekki 24/7 þjónusta?

Reynslan hefur sýnt okkur að, miðað við að uppitími hýsingar er um 99,99%, þá fáum við ekki mikið af hjálpar beiðnum eftir fyrstu dagana eftir að nýr viðskipavinur kemur inn til okkar, við reynum því eftir fremsta megni að koma nýjum viðskiptavinum hratt og örugglega fyrir á nýju hýsingunni. Við vöktum svo hýsingarnar ef eitthvað skildi fara úrskeðis, því má segja að við höldum úti 24/7 klst vöktun.

Hvað er WordPress?

WordPress er eitt vinsælasta vefsíðukerfi heims. Það er áætlað að yfir 42% af öllum vefsíðum í dag notist við WordPress. Það er því gífurlegur stuðningur á bak við þetta geysivinsæla kerfi og lítið mál að fá útlit (þemur), ýmis tól (plugin) og allt annað sem þig gæti vantað til að setja upp vefsíðu.

Ég er nú þegar með hýsingu, getið þið gert mér tilboð í nýja?

Já, við getum svo sannarlega gert þér tilboð! Hvernig hljómar, þú færð fría hýsingu hjá okkur þar til gamla hýsingin rennur út? Það eina sem þú þarft að gera er að hafa samband og tjá okkur um hver staðan er, við leiðbeinum þér svo um framhaldið.

Hvað þjónustum við og hvað ekki?

Við þjónustum allt sem viðkemur vef- og pósthýsingu. Við þjónustum ekki vefsíður nema þú hafir gert sér samning við okkur þar um, þá getur þú sent á okkur viðhaldsbeiðni sem hefur beint með vefsíðu þína að gera.

Bjóðið þið upp á viðhaldsþjónustu?

Já, við gerum það. Endilega sendu á okkur skilaboð hér að ofan og láttu okkur vita hvað þig vantar og við gerum þér tilboð.

Afhverju er sumt á íslensku en annað á ensku?

Það er einfaldlega upp á hentugleika, þ.e.a.s við erum með aðra enska síðu og deila því Vefgeymslan.is og enska síðan sömu sölusíðuni. Þú getur skipt yfir í annað tungumál á mjög einfaldan hátt. Neðst á síðuni fyrir bakenda hýsingar er Google translate tól og þar getur þú valið um 133 tungumál. Endilega kíktu á prufuútgáfu af hýsingu og prófaðu virknina.

Má nota hýsingu sem gagnageymslu?

Nei. Þó hýsing gæti verið seld sem ótakmörkuð, þá þýðir það ekki að hægt sé að misnota hýsinguna til að geyma ótakmarkað af gögnum. Eingöngu er ætlast til þess að hýst sé vefsíða á hýsingunni og efni tengt vefnum. Verði notandi vís að því að nota vefhýsinguna til einhvers annars en til er ætlast, þá mun viðkomandi fá áminningu og ef ekki er farið eftir fyrirmælum, þá er hýsingu lokað.

Get ég flutt vefsíðu og póst yfir til Vefgeymslan.is?

Já, ekkert mál. Það er meir að segja sjálfvirkt tól sem einfaldar þér þetta til muna. Ef það gengur ekki eftir, þá er alltaf hægt að notast við FTP eða hreinlega láta okkur vita og við aðstoðum þig með það frítt!

Get ég selt hýsingar/þjónustur og þannig fengið inneign?

Já, ekkert mál. Þegar þú kaupir hýsingu, þá færðu valmöguleika undir “Your Account” -> “Affiliate” og þar til hægri á skjánnum sérðu “Become An Affiliate”, smellir á það og endurhleður síðuna, þá ættir þú að sjá hlekk sem lítur út einhvern vegin svona https://my.vefgeymslan.is/?aff=b123456789 sem þú getur deilt á vini, fjölskyldu eða almennt á hvern sem er. Ef einhver verslar svo í gegnum hlekkinn, þá færð þú 30% af söluverðinu, t.d ef hýsing kostar 30 þús. árið, þá fengir þú 9000 kr. Þú getur svo nýtt inneignina til að borga fyrir hýsinguna þína og/eða kaupa aðra þjónustu.

Get ég skipt yfir á Íslensku í bakenda hýsingar?

Já, ekkert mál. Það er stuðningur við 133 tungumál. Þú getur skipt yfir í annað tungumál á mjög einfaldan hátt. Neðst á síðuni fyrir bakenda hýsingar er Google translate tól og þar getur þú valið um 133 tungumál. Endilega kíktu á prufuútgáfu af hýsingu og prófaðu virknina.

Eru einhver falin gjöld?

Nei, svo einfalt er það.

Lýst þér vel á?

Afhverju ekki að skoða pakka tilboðin okkar og fá glæsilegt tilboð!