Vefgeymslan.is
Áreiðanleg, Hagkvæm og Einstaklingsmiðuð Lausn
Velkomin til Vefgeymslan.is, traustur samstarfsaðili fyrir allar þínar vefhýsingar þarfir. Fyrirtækið var stofnað áríð 2019 og hefur markmið okkar alltaf verið einfalt en metnaðarfullt: að bjóða áreiðanlega, hagkvæma og einstaklingsmiðaða vefhýsingu sem fer fram úr væntingum.
Ferðalag Vefgeymslan.is
Þó Vefgeymslan.is sé stofnuð 2019, þá hefst saga okkar löngu fyrir það og má rekja allt til ársins 2010, eða þegar við byrjuðum á okkar fyrstu vefsíðu. Við vildum auðvitað ekki vera að finna upp hjólið leituðum við því til margra af stærstu vefhýsifyrirtækjum í greininni, þar á meðal SiteGround, InMotionHosting og jafnvel nokkrum íslenskum hýsingaraðilum. En eftir því sem við fórum í önnur verkefni, persónuleg og fyrir aðra, þá fór að gæta að ýmsum vandamálum sem við gátum ekki sætt okkur við:
- Óáreiðanleg þjónusta: Aðstoð sem stóð ekki undir væntingum, sérstaklega þegar lausnir urðu flóknar. Var þá lausnin oftar en ekki að takmarka þjónustuna.
- Takmarkaðar lausnir: Vefhýsinga pakkar með takmarkaðar lausnir sem voru enn frekar skertar með tímanum.
- Hár kostnaður: Dýrir pakkar sem skiluðu ekki því virði sem verkefni okkar og viðskiptavinir kölluðu eftir.
- Skortur á þjónustu: Skortur á mikilvægri þjónustu sem varð til þess að við leituðum að betri lausnum.
Að lokum var okkur ljóst að okkar viðmið voru einfaldlega of há fyrir stóru fyrirtækin sem forgangsröðuðu að skera niður frekar en að fullnægja þörfum viðskiptavina.
Að Byggja Betri Lausn
Til að búa til betri upplifun, þá var ekkert annað val en að stofna nýja hýsingaþjónustu og úr varð Vefgeymslan.is. Með því að fara þá leið, þá getum við boðið upp á:
- Hagkvæm Verð: Hágæða vefhýsingu með samkeppnishæfu verði.
- Heildarlausnir: „Allt í einum pakka“ lausnir sem eru sniðnar að þörfum viðskiptavina.
- Einstaklingsmiðuð Þjónusta: Skuldbinding um að bæta stöðugt þjónustu okkar og auka virði fyrir viðskiptavini.
Ef þú hefur áhuga á WordPress og hvort sem þú ert að hýsa persónulega bloggsíðu, faglega vefsíðu eða risa vefverslanir, þá er Vefgeymslan.is til staðar til að skila þér áreiðanleika, afkastagetu og þjónustu sem þú þarft til að ná árangri á netinu.
Okkar Loforð
Hjá Vefgeymslan.is, þá trúum við ekki á að stytta okkur leiðir. Við munum því ávalt leitast eftir að veita:
- Framúrskarandi Þjónustu: Alltaf tilbúin til að aðstoða og/eða skoða ef vandamál ber að dyrum.
- Öflugar Vefhýsilausnir: Lausna miðaðar og Sveigjanlegar sem vaxa eftir þínum þörfum.
- Stöðugt Virði: Stöðugar umbætur og framúrskarandi þjónusta til að vera fremst á meðal jafningja.
Gakktu til liðs við okkur og uppgötvaðu vefhýsingaþjónustu sem raunverulega lætur sig varða um velgengni þína. Reyndu vefhýsingu eins og hún á að vera – áræðanleg, hagkvæm og hannaða með þarfir þínar í huga.
