Í heimi vefsíðukerfa (CMS – Content Management System), þá er WordPress án efa eitt af því vinsælasta og öflugusta kerfið á markaðinum.
Ef þú myndir ákveða að nýta WordPress fyrir vefsíðuna þína, þá yrðir þú aldeilis ekki í minnihluta því yfir 43% af öllum vefsíðum á netinu eru WordPress vefsíður.
Lítil jafnt sem stór fyrirtæki sjá sér hag í að notast við Wordrpess enda er WordPress óendanlega sveigjanlegur kostur fyrir hvað svo sem þig langar að gera, svo ekki sé minnst á að, það er 100% frítt!
Í þessari grein þá langar okkur að velta því fyrir okkur eilítið hvort WordPress sé málið eður ei. Það skildi þó taka fram að, við erum mjög hliðholl WordPress, en við viljum meina að með gefinni reynslu okkar á þessu vinsæla vefsíðukerfi, þá sé reynslan að sína okkur að það sé fátt annað, ef þá, nokkuð annað sem jafnast á við WordPress, en auðvitað getum við einungis fært rök fyrir þeirri skoðun. Á endanum ert það þú sem dæmir um það.
Ef það eru einhverjar spurningar sem vakna eftir á, endilega sendu á okkur línu og við svörum um hæl.
Hvað er WordPress?
WordPress er eins og áður sagði, vefsíðukerfi, eða svo kallað, CMS – Content Management System. WordPress er sem sé grunnurinn sem heldur utan um allt sem gerist á vefsíðuni. Ofan á WordPress er svo hægt að setja þemu og bæta svo við óendanlega mörgum eiginleikum með viðbætum, eða plugins.
WordPress hefur gífurlega stórt samfélag á bak við sig svo ekki sé minnst á, rétt rúmlega 20 ára þróun að baki sér, eða síðan 27 maí, 2003.
Vegna stærðar þess samfélags sem er í kringum WordPress, þá eru ótrúlega mörg tól, þemur og aðrar lausnir til sem hægt er að nýta sér. Á WordPress.org, þar má finna frítt safn af um 60.000 viðbótum (plugin) og 9000 þemum (themes).
Nú, ef frí tól og þemur eru ekki alveg að heilla þig og þig langar í einhverjar úrvals (premium) viðbætur/þemur, þá er það engu síðra og er hægt að finna allt á milli himins og jarðar hvað það varðar.
WordPress og öryggi.
Það skildi taka það frama að WordPress eitt og sér er með því öruggasta sem þekkist á markaðinum, en t.d, aðeins 0.6% af öllum öryggisgöllum sem fundust fyrir árið 2022, fundust í sjálfum kjarnanum (core) í WordPress og er það yfirleitt fundið mjög fljótt og lagað.
Þegar verið er að gagnrýna öryggi innan WordPress, þá er yfirleitt verið að benda á það sem gerir WordPress einmitt svo gífurlega öflugt en um leið, opnar fyrir öryggis óværur, eru viðbætur og þemur sem sem koma frá þriðja aðila (er ekki hannað af WordPress teyminu og/eða frá samstarfsaðilum þeim tengt). Þetta getur leitt til þess að það sé ekki verið að fylgja eftir ströngustu reglum hvað varðar öryggi.
Hægt er að komast hjá þessu með einföldum reglum sem gott er að temja sér þegar verið er að velja sér þemu eða viðbætur t.d með því að skoða umfjallanir. Notendur eru yfirleitt fljót að tilkynna um galla einkunargjafir gefa oft tilkynna hversu ánægðir notendur eru yfir höfuð með það sem á að næla sér í. Einnig er gott að hafa samband við þann aðila sem hannar þemu/viðbót ef á að versla og sjá hversu fljótt og vel er svarað, það segir yfirleitt mikið um þann sem hannar.
Þrátt fyrir það, þá er hægt að minnka þetta til muna með öryggistólum (security plugins) og er jafnvel innbyggt í flestar hýsingaveitur í dag tól sem leita eftir öryggisgöllum og láta vita um leið og það finnst.
WordPress er einnig með sjálfvirka uppfærslu möguleika sem passar upp á að þemur og viðbætur séu ávalt uppfærðar sem minnkar áhættuna til muna.
Eins og með Wndows og vinsældir þess, þá er WordPress það vinsælt að það verður skotspónn óheiðarlegra aðila meira en með önnur vefsíðukerfi.
Áhættan er þó svo lítil í stóra samhenginu að aðilar eins og Sony, Mercedes-Benz, Bloomberg, Microsoft og fleiri stór fyrirtæki sjá sér hag í að nota WordPress.
Hvað með vefsíðugerð í WordPress?
Margir vilja meina að WordPress sé ekki mjög sjónrænt þegar kemur að því að hanna vefsíður. Það er fjarri lagi. Þó WordPress hafi upprunalega verið hannað sem Blogg kerfi, þá hefur það þróast út í eitt öflugasta vefsíðuhönnunarkerfi í heimi og nú nýverið, fengið innbyggt sjónrænt vefbyggingakerfi, eða Gutenberg.
Við mælum eindregið með því að þú prófir það sjálf/ur hér. Nú, ef Gutenberg er ekki alveg að gera það fyrir þig, þá er hægt að versla enn öflugri tól eins og Divi svo fátt eitt sé nefnt.
Það er svo eins og áður sagði hægt að fá 9000 fyrirfram tilbúnar þemur frítt á WordPress.org og 11 þúsund þar til viðbótar sem hægt er að versla eða fá frítt hjá þriðju aðilum.
Inn í þessu eru ekki talin svo kölluð templates/layouts sem fylgja t.d Divi, sem bíður upp á rúmlega 750 fyrirfram byggð útlit sem Þú getur svo sérsniðið enn frekar að þínum þörfum, möguleikarnir eru því endalausir.
Þegar endan er á litið, er WordPress fyrir mig?
Ef litið er til þess að kerfi eins og WIX, WordPress.com (sem ekki má rugla við WordPress.org), Squarespace, þá eiga þau öll eitt sameiginlegt. Þau festa þig í mjög takmörkuðu kerfi þar sem þú getur einungis nýtt þér það sem þessi fyrirtæki bjóða upp á. Þetta getur verið einstaklega dýrt og óhagkvæmur kostur fyrir marga, enda getur það kostað ótrúlega að sækja sér aðstoð og/eða láta bæta við eða laga eitthvað sérstakt, svo ekki sé minnst á, læstur inn í vefhýsingu (oft óþarflega dýrri vefhýsingu) og því ekkert hægt að færa sig ef illa gengur með þjónustuaðilann. Við höfum mörg dæmi því tengt og höfum við sparað viðskiptavinum okkar hundruði, ef ekki milljónir bara með því að færa yfir í WordPress.
Allt sem hægt er að gera í þessum kerfum er hægt að gera í WordPress. Ef þig vantar að tengjast DK bókhaldskerfinu, þá er það ekkert mál. Ef þig vantar verslunarkerfi, þá er Woocommerce málið og svo mætti lengi telja.
Ef þú vilt hafa WordPress á Íslensku, þá styður WordPress það og rúmlega 100 önnur tungumál og ekkert mál að þýða kerfið, sem og viðbætur og þemur ef eitthvað er.
Með WordPress, þá eru hundruði, ef ekki þúsundir aðilar sem geta þjónustað þig, hvort sem það er með vefsmíði, almenn aðstoð eða hvað svo sem þig vantar. Þú getur valið úr ótal hýsingar aðilum og ert því ekki bundinn við að færa þig ef eitthvað kemur upp á.
Sé tekið tillit til sveigjanleika WordPress, þá trúum við því staðfastlega að WordPress sé svo sannarlega málið! Endalausir möguleikar, opið vefsíðukerfi (Open source) og frítt í þokkabót.
Við höfum nú verið að hanna vefsíður í WordPress og hýsa í um 13+ ár og teljum okkur því getað fullyrt að það fyrirfinnst ekki betra vefsíðukerfi á markaðnum þótt víðar væri leitað.
