Hvað er vefhýsing?
Í stuttu máli og til einföldunar, þá er vefhýsing þjónusta sem sér um að birta vefsíðu þína á netinu. Þegar þú verslar vefhýsingu, þá ertu að versla/leigja geymslu fyrir vefinn þinn og allt það sem því fylgir, t.d myndir, myndbönd, skrár og s.frv.
Vefhýsingaraðilar bera ábyrgð á því að hýsa og reka þann vélbúnað sem þarf til að halda uppi vefnum þínum. Hýsingaraðilinn tryggir öryggi vélbúnaðarins, bakenda vefhýsingar (ath hér er ekki verið að tala um vefinn sjálfann) og s.frv. Hýsingaraðilinn tryggir einnig að skrár, svo sem, myndir, myndbönd, skrár og s.frv flæði örugglega frá hýsingaraðila til þess sem skoðar vefinn.
Í þessari grein ætlum við að fara aðeins nánar út í hvað vefhýsingar eru og hvað er í boði.
Hvernig virkar vefhýsing?
Á bak við vefhýsinguna er vélbúnaður sem keyrir vefsíðuna og sér til þess að miðla öllu þvi efni sem vefurinn hefur til þess sem notar vefsíðuna.
Þegar þú verslar hýsingu þá hefur þú stað þar sem þú getur hýst vefinn þinn og allt sem því fylgir. Hýsingin sér þá til þess að allar skrár sem tilheyra vefnum séu sífelt keyrandi og getur því notandinn sótt vefinn hvenær sem er.
Nú, þú getur auðvitað hýst vefinn þinn sjálf/ur, en það tekur nokkura kunnáttu. Að hýsa vefinn sjálf/ur gefur þér auðvitað ákveðið frelsi en það kemur líka með ákveðinni áhættu sem verður að taka inn í reikninginn eins og öryggisafritun, uppitíma vélbúnaðar og s.frv. Það getur oftar en ekki verið dýrara og áhættusamara að reka hýsingu sjálf/ur, það skildi því vega og meta það vel áður en lengra er haldið.
Tegundir Vefhýsinga
Það eru til all nokkrar tegundir vefhýsinga sem getur gert val á milli þeirra nokkuð erfitt, vonandi mun þetta gefa þér einhverja hugmynd um það sem þú getur valið um kosti og galla hvers og eins.
Deild hýsing (Shared hosting)
Í deildri hýsingu þá deila margir einni hýsingu. Það getur verið mjög hagkvæmt þar sem kostnaður er þá minni en ókostirnir eru þá e.t.v einna helst að ef ein vefsíðan er með mikla umferð eða efni sem krefst mikils af vélbúnaðinum, þá getur það bitnað á þeim vefsíðum sem eru að deila hýsingunni.
Þessar tegundir hýsinga henta því best smáum vefsíðum, bloggum eða einföldum fyrirtækjasíðum. Þessar hýsingar krefjast ekki mikillar tækniþekkingar og eru því kjörnar fyrir byrjendur.
Sýndarþjónar (VPN – Virtual Private Server)
Á þessum þjónum, þá deilir þú einnig með öðrum, en munurinn er sá að búið er að hluta niður þjóninn (partition) og þar með færð þú úthlutað þann vélbúnað sem þú þarft til að reka vefsíðuna. Þessar hýsingar eru öflugar en geta kostað eilítið meira en deild hýsing.
Þessi tegund þjóna hentar vel fyrir miðlungs stórar síður, vefverslanir og annað kröfuharðara en það sem deild hýsing myndi annars bjóða upp á.
Skýjahýsing (Cloud hosting)
Þessi tegund hýsinga nýtir marga vefþjóna í einu og deilir því álaginu ef einhver vefur nýtir of mikið af hýsingunni.
Þar sem skýjahýsing nýtir marga vefþjóna í einu og dreifir þannig álaginu ef eitthvað er, þá henta þessir þjónar mjög vel fyrir vefverslanir og/eða fyrir aðrar vefsíður sem krefjast mikils uppitíma.
Gallinn við þessar hýsingar er oftast nær sá að kostnaðurinn getur verið nokkuð meiri en með deilda hýsingu og sýndarþjóna.
WordPress hýsing
Þessi tegund vefhýsinga er hönnuð sérstakleg með það fyrir augum að keyra WordPress vefsíðukerfið (CMS – Content Management System). Eru þá vefþjónarnir sérstaklega stilltir til að WordPress vefsíður keyri sem allra best og er því ekki mælt með að keyra önnur vefsíðukerfi á slíkum þjónum.
WordPress hýsingar koma með vefsíðukerfinu fyrirfram uppsettu og er því lítið mál að klára uppsetningu. Það fylgir svo oft ýmislegt annað með slíkum hýsingum, t.d þemur, viðbætur, CDN og ýmislegt fleira. Miðað við það sem kemur með slíkum hýsingum þá eru þær vel þess virði og nokkuð ódýrar.
Tileinkaðir þjónar (Dedicated hosting)
Tileinkaðir þjónar eru ætlaðir mjög kröfuhörðum verkefnum. Hér leigir þú heilan þjón með öllum þeim tækjabúnaði sem því fylgir og getur sett upp hvaða stýrikerfi sem þú vilt og þá hvaða vefsíðukerfi sem er, þú ert því algerlega við stjórn.
Slíkar hýsingar geta kostað nokkuð mikið og geta krafist nokkurar tækniþekkingar þar sem þú situr við stjórnvölin og þarft því að setja allt upp sem þú vilt hafa. Þessar hýsingar eru ætlaðar stórum fyrirtækjum og/eða kröfuhörðum verkefnum.
Hvað á að velja?
Þegar verið er að velja sér vefhýsingarþjónustu, þá er margt um að velja er þá helst að nefna:
Er þá póstþjónustan deild með hýsingu eða útfyrir hýsingu (Vefgeymslan býður upp á sérhýsta póstþjónustu með öllum WordPress hýsingum).
Öryggi vefhýsingarinnar, er t.d DDOS vörn, er malware vörn og fleira sem kemur í veg fyrir við óprútnir aðilar nái vefsíðuni á sitt vald.
Kanntu mikið inn á vefhýsingar og getur því stjórnað sjálf/ur hvaða stýrikerfi er sett upp, sett upp vefsíðukerfi sjálf og s.frv, eða viltu sem minnst koma nálægt þessu og láta aðra um að stjórna, eða viltu milliveg og hafa í það minnsta möguleikann á að eiga við hýsinguna að einhverju eða öllu leiti.
Er vefsíðan einföld, t.d blog, einfaldar fyrirtækjasíður, eða ertu með stórt verkefni, t.d vefverslun, vefsíður sem keyra þung vefforrit, vefsíður með mikilli umferð og s.frv.
Í flestum tilfellum, þá ættir þú að komast upp með WordPress hýsingu, enda mjög einfalt að setja upp og hægt að klára uppsetningu á innan við 10 mínútum og þú færð möguleikann á að stjórna flestu í bakgrunninum.
Ef þig vantar ráðleggingar, endilega sendu okkur skilaboð og við munum meta verkefnið fyrir þig og ráðleggja þér um þá hýsingu sem þú þarft.
