Hvernig á að setja upp viðbætur (plugin) í WordPress

Skrifað Af Vefgeymslan

ágúst 20, 2022
"

Lesa meira

Viltu hágæða vefhýsingu? Við getum aðstoðað þig með það.

Nú ertu búin/n að setja upp WordPress og langar að spreyta þig á því að setja inn viðbætu, eða “plugin” til að bæta við notagildi þess. Þá er ekkert annað í stöðuni en að setja upp nokkrar viðbætur.

WordPress býður upp á eitt af stærstu og öflugustu viðbætur sem nokkurt annað vefsíðukerfi hefur upp á að bjóða í dag og fer það stækkandi frá degi til dags. Hægt er að velja úr um 55 þúsund viðbótum og mikið af þeim eru frí sem gerir WordPress að enn öflugri kost.

Hvernig eru viðbætur settar upp?

Þegar búið er að skrá sig inn í bakenda WordPress, þá er að smella á “Plugins”.

Þá ætti að koma upp val listi og þar velur þú “Add New”.

Þá færðu upp leitar glugga þar sem þú getur leitað eftir viðbætum frá WordPress.org sem heldur utan um stærsta safn af fríum viðbótum fyrir WordPress. Eftir því sem þú leitar (leitina má finna efst upp í hægra horninu), þá breytist valmyndinn og gefur þér valmöguleika á viðbótum miðað við þau leitarorð sem þú settir inn.

Þegar búið er að finna þá viðbót sem þú vilt setja inn, þá er hægt að velja “Install Now”, mun þá vibótin vera sett inn og því næst er smellt á “Activate” til að virkja viðbótina.

En hvað ef mig vantar að setja viðbót inn í með .Zip skrá?

Ef þú hefur hins vegar plugin sem er pakkað inn í .Zip, þá er hægt að flytja inn skránna með því að velja “Upload Plugin”.

Þegar smellt er á “Upload Plugin”, þá færðu upp valmynd og þar velur þú “Choose File” (rauða örin). Nú vafrar þú eftir viðbótinni sem er í .Zip og velur skránna. Þegar skráin hefur verið valin, þá lýsist upp “Install Now” (bláa örin). Nú ætti WordPress að setja allt inn og þú færð svo valmöguleikan á að “Activate”, smellir á það og þá er viðbótin virkjuð.

Nú hefur þú grunnþekkingu til að setja upp viðbætur í WordPress. Ef það eru eitthvað annað sem þú vilt fá leiðbeingar um, endilega sendu á okkur skilaboð og við bætum því við og sendum á þig skilaboð þegar við höfum birt greinina.

 

Vantar þig einfalda vefsíðulausn? Sendu á okkur línu og segðu okkur hvað þig vantar.