Hvernig á að setja upp WordPress vefsíðu?
Vefsíðugerð hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og er orðið mun léttara en áður var. Að búa til vefsíðu hefur þróast frá því að vera aðeins á færi forritara yfir í tilbúnar þemur sem hver sem er getur sett upp án mikillar fyrirhafnar og nú hafa tól tekið við sem leyfa þér að púsla heilu vefsíðunum saman.
En að grunninum skal huga og því ætla ég hér að neðan að leiðbeina um hvernig á að setja upp þína eigin vefsíðu frá grunni, þ.e.a.s velja hýsingu, lén og loks, ganga frá uppsetningu á WordPress.
Ef þig vantar aðstoð á einhverjum tímapunkti, þá er þér velkomið að hafa samband og við leiðbeinum þér.
Vefsíðukerfi, hvað er nú það?
Vefsíðukerfi eða Content Management System (CMS) eru kerfi sem halda utan um vefsíðuna Því er mikilvægt að velja það sem hentar þér best.
Það eru vissulega til mörg sniðug vefsíðukerfi, t.d Shopify, Wix, Squarespace og s.frv en þar sem ég trúi á opinn hugbúnað (open source software), þá mun ég fyrst og fremst fjalla um WordPress.
Yfir 40% af vefsíðum í dag notast við WordPress vegna þess hve ódýrt og einfalt, en umfram allt, öflugt kerfið það er.
WordPress býður einnig upp á mikinn sveigjanleika þegar kemur að hýsingum þar sem þú getur ávallt flutt þig á milli hýsingaraðila ef þér líkar ekki þjónustan án mikillar fyrirhafnar.
WordPress hefur ótrúlega stórt samfélag á bak við sig sem fer sí stækkandi sem þýðir að þú getur fundið hvað svo sem þig vanhagar um fyrir WordPress, t.d þemur (theme), viðbætur (plugins) og/eða hvað svo sem þú þarft til að setja upp vefsíðuna.
Það er vert að nefna að þróunin á WordPress hefur tekið stórum framförum undanfarin ár. Þá hefur t.d verið komið fyrir tól í WordPress sem getur nánast útrýmt þörfinni á að versla þemur (útlit). Tólið heitir Gutenberg og er svo kallaður vefsíðu byggir (web builder). Með því getur þú púslað vefsíðunni saman. Það eru þó til nokkrir aðrir vefsíðu byggjar, ef þú vilt fá ítarlegri tól en Gutenberg og hafir þú áhuga á að nýta slík tól, þá mælum við hiklaust með Divi.
Á grunninum skal vefsíðu byggja.
Nú erum við komin í uppsetningarferlið sjálft en áður en lengra er haldið, þá er vert að huga að nokkrum grunn atriðum.
Hýsing
Vefhýsingin er það sem hýsir vefsíðukerfið, myndir, myndbönd og allt annað sem þarf til að reka góða vefsíðu. Vefhýsingar koma í öllum stærðum og gerðum en mikilvægast er að hafa vefhýsingu þar sem vefsíðan er í afritun (backup), þú vilt fyrst af öllu tryggja öryggi vefsíðu þinnar áður en byrjað er.
Nú er að meta hversu stórt verkefnið er, en skipta má vefsíðum gróflega upp í þrjá flokka, eða:
- Upplýsingasíður, blog og s.frv eða síður sem innihalda mest megnis texta og e.t.v örfáar myndir og krefjast því ekki mikils pláss. Ef þú ert t.d að setja upp vefsíðu fyrir fyrirtæki, þá nægir þér að versla minnstu vefhýsinguna sem við bjóðum upp á.
- Ef þú hefur hins vegar hug á að opna vefverslun, myndasíður (myndir/myndbönd) og s.frv sem krefjast mikils pláss, þá mælum við með stóra pakkanum, enda viltu hafa gott ráðrúm til að skipuleggja vefsíðuna.
- VPS hýsing, eða Virtual Private Server, slíkar hýsingar eru ætlaðar þeim sem eru með verkefni sem eru einstaklega kröfuhörð á vélbúnað, t.d mjög stórar vefverslanir, vefsíður sem keyra flóknar vefþjónustur og s.frv.
Email og grunn vöktun er innifalin í öllum pökkum sem við bjóðum upp á og því ertu nokkuð örugg/ur með allt sem þig vantar. Ef þig vantar hins vegar ítarlega vefumsjón, þá gerum við tilboð í það ef þú óskar eftir því.
Lén
Þegar búið er að velja vefhýsingu, þá er komið að því að velja flott nafn á vefsíðuna, þá er ekkert annað eftir en að versla sér lén (domain). Ísland hefur sitt eigið lén eða .is eins og mörg okkar kannast við, en það eru til út fyrir það yfir 400 aðrar týpur af lénum sem hægt er að velja á milli, t.d .com, .org, .net .beer og fullt af öðrum skemmtilegum lénum.
Þú getur byrjað á að skoða lénin hér, eða beðið með það þar til þú verslar hýsinguna. Ef þú vilt .is lén, þá er það verslað á ISNIC.
Mælt er með því að lénið sé ekki lengra en 15 stafir. Þá er gott að notast ekki við bandstrik (-), t.d vef-hysing.is, eða annað sem gæti gert þeim sem leitar eftir vef þínum erfiðara fyrir.
Ef þú ákveður að velja íslenskt lén, eða .is, þá ferð þú yfir á ISNIC og verslar lénið, þú færð svo leiðbeiningar í hýsingar aðganginum um hvernig megi setja setja DNS stillingar fyrir vefinn þinn, eða þú getur haft samband við okkur og við munum setja allt upp fyrir þig ókeypis.
Uppsetning vefsíðunar
Nú förum við loks út í að versla hýsinguna/lén og klára uppsetningu á vefsíðukerfinu. Fyrsta skrefið er að velja hýsinguna, til að einfalda hlutina, þá nægir þér að smella á „panta“ hér að neðan og opnast þá nýr flipi (tab) hér í vafranum og þú getur þá gengið í gegnum allt ferlið eftir því sem þú lest þér til hér að neðan.
Wordpress
Sérsniðið að WordPress, einu öflugasta og vinsælasta vefsíðukerfi heims!- Allt að ótakmarkað SSD diskpláss
- WordPress uppsett
- Dagleg öryggisafritun af vef og pósti.
- Ótakmörkuð Bandvídd
- Allt að ótakmörkuð 10GB Pósthólf
- SSL, CDN, 1TB DDOS og s. frv.
- og margt fleira, sjá nánar hér að neðan…
Nú ættir þú að vera komin í valmyndina fyrir hýsingar sem eru í boði. Veldu það sem þú metur vera hæfilegt fyrir verkefni þitt miðað við það sem við ræddum hér að ofan.
-
- Hér hefur þú val um að velja þitt eigið lén „Register a new domain“, þá setur þú inn að neðan nafnið sem þú vilt og jafnvel velur þér lén, t.d .com, .org, eða hvað svo sem þú vilt, það er þó ekki skilyrði að velja sér lén, þú getur einfaldlega sett inn nafnið sem þú vilt og séð hvaða léna endingar eru í boði hverju sinni.

- Ef þú átt lén nú þegar, þá velur þú „Use an existing domain name“, þá setur þú lénið þitt, t.d exampledomain.com og velur „use domain“, þá ferð þú fyrir í næsta skref. Þegar þú ert svo búinn að versla hýsinguna, þá verður þér gefin upp DNS færslur sem þú þarft að nota hjá þeim sem þú verslaðir lénið þitt af, það verða skilaboð í hýsingunni hægra meginn með leiðbeiningum þar um.

- „Transfer a Domain Name to Vefgeymslan.is“ getur þú flutt lénið þitt yfir til okkar, ath: það er ekki hægt að flytja ISNIC lén (.is) yfir til okkar, en öll önnur lén er hægt að flytja. Það er flutningsgjald sem við ráðum ekki við, það ræðst af samningum okkar við þriðja aðila sem tekur að sér að geyma lénin.

- „Choose domain later“ er fjórði valmöguleikinn, en hér getur þú einfaldlega verslað hýsinguna fyrst og séð svo til seinna með að finna nafn á vefsíðuna (finna lén).

- Hér hefur þú val um að velja þitt eigið lén „Register a new domain“, þá setur þú inn að neðan nafnið sem þú vilt og jafnvel velur þér lén, t.d .com, .org, eða hvað svo sem þú vilt, það er þó ekki skilyrði að velja sér lén, þú getur einfaldlega sett inn nafnið sem þú vilt og séð hvaða léna endingar eru í boði hverju sinni.
Hvaða valmöguleika sem þú velur, þá endar þú í þessum glugga næst þar sem þú ert beðin/n um að skrá þig inn eða skrá nýjan notanda. Ef þú hefur þá þegar stofnað notanda, þá skráir þú þig inn og stekkur í næsta skref.
Hafir þú aftur ekki skráð nýjan notanda, þá velur þú „Create an account“. Setur inn netfang og velur þér lykilorð, muna að haka í „I agree to the Vefgeymslan.is Terms and conditions“, smellir svo á „Create an Account“.
Þú ættir þá að fá upp þessa síðu næst þar sem þú fyllir út nánari upplýsingar um þig. Ef þú ert að versla fyrir hönd fyrirtækis, þá smellir þú á “Business” en “Individual” ef þú ert að versla fyrir þig sem einstakling.
Eftir að þú hefur skráð þig inn, eða nýskráð þig og fyllt inn allar notenda upplýsingar, þá smellir þú á „Continue“ og ferð í greiðsluferlið.
Ath. Þó að hér sé aðeins í boði að velja Paypal, þá er hægt að greiða með greiðslukorti ef þú átt ekki reikning hjá Paypal.
Þegar greiðslu er lokið, þá færð þú aðgang að vefhýsingunni og getur þá klárað að setja upp ef eitthvað þarf, t.d að miðla léni (setja inn DNS færslur í léna hirðir, eða domain registrar, t.d ISNIC og s.frv). Ef það eru einhverjar spurningar eða vandamál, þá er um að gera að hafa samband og við aðstoðum þig eins fljótt og mögulegt er.
WordPress uppsetning
Nú, ef allt er sett upp eins og á að vera, þá getur þú farið inn á vefsíðu þína, t.d exampledomain.com og ættir þú þá að sjá þessa síðu þar sem þú velur tungumálið sem þú vilt.
Ath. Ef þessi síða kemur ekki upp, þá gæti það tekið smá tíma fyrir DNS (sérstaklega ISNIC) að verða virkt, gæti tekið allt að 24 klst, gefið þessu því smá tíma.
Ef þú fékkst að velja tungumál, þá ættir þú að komast á næsta stig sem þar sem þú setur inn nafnið á vefsíðuni, býrð til notanda og s.frv. Fylltu allt út og veldu „Install WordPress“.
Nú ættir þú að vera búin/n að setja upp vefsíðuna þína og ættir að geta skráð þig inn með því að smella á “Log in” eða “skrá inn” eftir því hvaða tungumál var valið eða fara á nafnvefsidu.com/wp-admin.

